Louise Michel
Louise Michel | |
---|---|
![]() Louise Michel árið 1880. | |
Fædd | 29. maí 1830 |
Dáin | 9. janúar 1905 (74 ára) |
Störf | Kennari, ljóðskáld, blaðamaður, byltingarsinni, hjúkrunarkona |
Undirskrift | |
![]() |
Clémence-Louise Michel (29. maí 1830 – 9. janúar 1905), yfirleitt kölluð Louise Michel og stundum þekkt undir viðurnefninu „Enjolras“, var franskur skólakennari, stjórnleysingi og femínískur hugsuður sem lék lykilhlutverk í Parísarkommúnunni árið 1871. Hún var sú fyrsta sem dró hinn svarta fána anarkismans að húni og gerði hann að vinsælli táknmynd stjórnleysisstefnunnar. Í íslenskum samtímaheimildum var henni líkt við „eins konar Hervör eða valkyrju byltingarinnar“.[1]
Michel hafði mikinn áhuga á menntun frá unga aldri og hafði unnið sem kennari í nokkur ár áður en hún flutti til Parísar árið 1856. Hún var farin að láta á sér bera á bókmennta- og stjórnmálasviðinu þegar hún var 26 ára og hafði kynnst mörgum helstu byltingarsinnum Parísar þegar kom á sjöunda áratuginn. Árið 1871 tók hún virkan þátt í Parísarkommúnunni, bæði í stofnun og vörn hennar. Stuttu eftir að uppreisn kommúnumannanna hófst í París bauðst hún til að ferðast til Versala og myrða Adolphe Thiers, nýkjörinn leiðtoga þriðja franska lýðveldisins, en áætlun hennar var ekki fylgt eftir.[2]
Frönsk stjórnvöld handsömuðu Michel í maí við endurheimt höfuðborgarinnar og sendu hana síðan í útlegð til Nýju-Kaledóníu. Í útlegðinni snerist Michel til stjórnleysishyggju og tók árið 1878 þátt í uppreisn frumbyggja eyjanna gegn frönskum nýlenduyfirráðum.[3] Hún sneri aftur til Frakklands árið 1880 og tók þátt í fjölmörgum mótmælum og fjöldasamkomum verkamannastéttanna. Yfirvöld fylgdust grannt með henni og fangelsuðu hana mörgum sinnum en hún h��lt áfram pólitískum baráttum sínum allt fram til dauðadags árið 1905.
Hún er enn vel þekkt meðal byltingarsinna og stjórnleysingja. Íslensk-franski kvikmyndaleikstjórinn Sólveig Anspach leikstýrði sjónvarpsmynd um Michel árið 2010.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Útlendar frjettir frá Júni 1880 til vordaga 1881“. Skírnir. 1. janúar 1881. Sótt 20. september 2018.
- ↑ Fernand Planche, La vie ardente et intrépide de Louise Michel, Édition Tops-H. Trinquier, 2005.
- ↑ Jean Maitron, Dictionnaire biographique du Mouvement ouvrier français, Les Éditions de l'Atelier, 1997, article « Louise Michel Geymt 20 febrúar 2009 í Wayback Machine ».
- ↑ „Naut þess að vinna hérlendis“. mbl.is. 16. janúar 2010. Sótt 29. október 2018.